Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1

Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1

Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin

Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og IFS meðferðaraðila um taugakerfið, áföll, krabbameinsvegferðina og það hvernig við getum skapað meira innra öryggi.

🧠 Pendúll taugakerfisins Hvernig sveiflast heilbrigt taugakerfi á milli virkni og hvíldar – og hvað gerist þegar við festumst í streitu, ótta, ofurárvekni eða doða?

🛡️ Líkaminn sem verndari Viðbrögð okkar eru ekki merki um að eitthvað sé að okkur. Þau eru oft leið líkamans til að vernda okkur eftir erfiða reynslu.

👨‍👩‍👧‍👦 Internal Family Systems – IFS Við ræðum um ólíka „hluta“ innra með okkur, verndarhlutana og Self – þann rólega, skýra og umhyggjusama kjarna sem getur mætt öllum hlutum okkar af hlýju og forvitni.

❤️ Öryggi áður en farið er í áföllin Auður segir frá Aha og Aha Safe Place, aðferðum sem hjálpa fólki að finna hlýju, hjartatengingu og öruggan stað innra með sér.

🔥 Streita, ónæmiskerfið og bólgur Við skoðum tengsl taugakerfisins, svefns, áfalla, næringar, hreyfingar, örveruflórunnar og ónæmiskerfisins.

🎗️ Að vinna með krabbameinssjúklingum Hvernig getur orðræða og upplýsingagjöf aukið ótta – og hvernig getum við skapað meiri ró og öryggi á erfiðri vegferð?

🩻 Brjóstakrabbameinsskimun Hver er raunverulegur árangur skimunar? Hvað eru ofgreining og ofmeðhöndlun? Og fá konur nægilega skýrar upplýsingar um bæði ávinning og mögulegan skaða?

Þetta er samtal um að taka skömmina úr viðbrögðum okkar, hlusta á líkamann og spyrja:

Hvað hefur taugakerfið mitt þurft að læra til að halda mér öruggri?

ATH: Þetta er fyrri parturinn af viðtalinu - seinni parturinn kemur innan skamms.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Tämä jakso on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi jakso saattaa sisältää mainontaa.

Jaksot(100)

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Syys 1h 25min

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales Unive...

17 Syys 1h 8min

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu....

14 Syys 1h 16min

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofna...

10 Syys 1h 48min

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga

Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga

🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Si...

7 Syys 2h 5min

Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum

Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum

👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnin...

31 Elo 1h 32min

Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu

👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur...

24 Elo 1h 12min

Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir

Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir

Lífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist skyndilega frá bringu og...

17 Elo 1h 21min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
aamukahvilla
psykopodiaa-podcast
adhd-podi
psykologia
voi-hyvin-meditaatiot-2
rss-liian-kuuma-peruna
koulu-podcast-2
rss-luonnollinen-synnytys-podcast
ilona-rauhala
kesken
rss-vapaudu-voimaasi
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-duodecim-lehti
rss-koira-haudattuna
rss-narsisti
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
rss-psykalab
rss-hereilla
rss-niinku-asia-on