Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Tämä podcast on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi podcastin jaksot saattavat sisältää mainontaa.

Jaksot(97)

Lára Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsu um D vítamín, sólarljós, sólarvörn, sífellda þekkingarleit og áhugavert nám í rótarlækningum og taugalækningum.

Lára Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsu um D vítamín, sólarljós, sólarvörn, sífellda þekkingarleit og áhugavert nám í rótarlækningum og taugalækningum.

7 Tammi 20251h 17min

Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir um góð skref í átt að bættri heilsu, nám í grasalækningum, heilsu, streitu, rafmagn ofl ofl.

Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir um góð skref í átt að bættri heilsu, nám í grasalækningum, heilsu, streitu, rafmagn ofl ofl.

Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir til 30 ára deilir með okkur reynslu sinni og þekkingu og hvað hún telur skipta mestu máli í heilsu - og hvernig best er að byrja nýtt ár. Hún hefur hjálpað tugum þúsun...

2 Tammi 20251h 31min

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir um náttúruleysi, mikilvægi birtunnar, seiglu, streitu, heilbrigðiskerfið og margt fleira.

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir um náttúruleysi, mikilvægi birtunnar, seiglu, streitu, heilbrigðiskerfið og margt fleira.

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir er gestur þáttarins sem hefur alla tíð haft heildræna sýn á heilsu og sem læknir sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Við förum yfir sviðið með henn...

23 Joulu 20241h 38min

Þorgrímur Þráinsson um lýðheilsu, eldhuga og heilbrigðustu þjóð í heimi.

Þorgrímur Þráinsson um lýðheilsu, eldhuga og heilbrigðustu þjóð í heimi.

Í þættinum fáum við til okkar Þorgrím Þráinsson, sem hefur verið óþreytandi í baráttunni fyrir bættri lýðheilsu og forvörnum á Íslandi. Þorgrímur var framkvæmdastjóri tóbaksvarnanefndar á árunum 1996–...

16 Joulu 20241h 54min

Einar Carl Axelsson um mikilvægi rassvöðva í hreyfingum, heilsuna og langlífi, tengingu hreyfingar og taugakerfis, öndun, seiglu og kvíðafaraldur þjóðarinnar.

Einar Carl Axelsson um mikilvægi rassvöðva í hreyfingum, heilsuna og langlífi, tengingu hreyfingar og taugakerfis, öndun, seiglu og kvíðafaraldur þjóðarinnar.

Í þættinum fjöllum við um lítið rætt en afar mikilvægt efni – hlutverk rassvöðvanna í heilsu okkar og hvernig vanvirkir rassvöðvar geta haft víðtæk áhrif á stoðkerfið og hreyfigetu. Viðmælandi þáttari...

9 Joulu 20241h 38min

Birna Ásbjörnsdóttir, doktor í lýðheilsu og gestarannsakandi við Harvard Medical School um meltingarveginn, þarmaflóru og heilsu.

Birna Ásbjörnsdóttir, doktor í lýðheilsu og gestarannsakandi við Harvard Medical School um meltingarveginn, þarmaflóru og heilsu.

Birna er einn okkar helsti sérfræðingur um áhrif þarmaflórunnar á heilsuna. Við ræðum hvernig matarræði og lífsstíllinn almennt hefur áhrif á bakteríuflóruna sem síðan hefur áhrif á öll líffærakerfin ...

2 Joulu 20241h 55min

Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir um kólesteról, statin lyf, mettaða fitu, forvarnir og lífsstíl sem áhrifaþætti hjarta- og æðaheilsu.

Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir um kólesteról, statin lyf, mettaða fitu, forvarnir og lífsstíl sem áhrifaþætti hjarta- og æðaheilsu.

Sem ungur sérfræðingur í hjartalækningum hafði Axel F. SIgurðsson mestan áhuga á bráðalækningum. Það var spennandi að bjarga fólki og bæta líf þeirra á örfáum mínútum með þræðingum og akút aðgerðum. Þ...

25 Marras 20241h 21min

Kristján Þór Gunnarsson, rótarlæknir um lýðheilsu og heilbrigði.

Kristján Þór Gunnarsson, rótarlæknir um lýðheilsu og heilbrigði.

Í þessum fyrsta þætti af Heilsuhlaðvarpinu tökum við á móti lækninum Kristjáni Þór Gunnarsyni. Við förum yfir sviðið þegar kemur að faraldri krónískra langvinnra veikinda en ástandið hefur aldrei veri...

18 Marras 20241h 38min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
psykopodiaa-podcast
voi-hyvin-meditaatiot-2
adhd-podi
rss-liian-kuuma-peruna
rss-vapaudu-voimaasi
psykologia
rss-niinku-asia-on
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
kesken
rss-rahamania
koulu-podcast-2
rss-koira-haudattuna
rss-narsisti
rss-uskonto-on-tylsaa
rss-hereilla
aloita-meditaatio
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
rahapuhetta
rss-luonnollinen-synnytys-podcast
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms | Podme