Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Tämä podcast on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi podcastin jaksot saattavat sisältää mainontaa.

Jaksot(91)

Áslaug Kristín Zoega um anorexíu, bata í gegnum hugvíkkandi meðferð, geðheilbrigðiskerfið, ást, náttúru, gleði og von.

Áslaug Kristín Zoega um anorexíu, bata í gegnum hugvíkkandi meðferð, geðheilbrigðiskerfið, ást, náttúru, gleði og von.

Áslaug Kristín Zoega er ungur háskólanemi og pilates þjálfari sem gekk í gegnum erfið ár þegar hún glímdi við alvarlegan átröskunarsjúkdóm, anorexiu. Hún hefur reynslu af hefðbundinni meðferð í bæði Á...

23 Kesä 20251h 32min

Þorbjörg Hafsteinsdóttir heilsu- og næringarþerapisti um hvað hefur áhrif á öldrunarferli líkamans, um áhrif sykurs á líkamann, um lífsstil sem dregur úr öldrun, telómera, hvatbera og margt fleira

Þorbjörg Hafsteinsdóttir heilsu- og næringarþerapisti um hvað hefur áhrif á öldrunarferli líkamans, um áhrif sykurs á líkamann, um lífsstil sem dregur úr öldrun, telómera, hvatbera og margt fleira

Þorbjörg Hafsteinsdóttir – Lífsstíll sem lengir lífið og eflir heilsuna Í þessum þætti ræðum við við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur frumkvöðul, heilsu- og næringarþerapista, lífsstílsþjálfa, jógakennara og...

17 Kesä 20252h 14min

Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala um af hverju viðhald vöðvamassa er grundvallaratriði til að viðhalda heilsu og að virkum og heilbrigðum æviárum

Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala um af hverju viðhald vöðvamassa er grundvallaratriði til að viðhalda heilsu og að virkum og heilbrigðum æviárum

Mikilvægi þess að viðhalda vöðvamassa – leiðin að virku og heilbrigðu lífi  Við ræðum við Önnu Björgu Jónsdóttur, yfirlækni öldrunarlækninga á Landspítalanum, um hversu mikilvægt það er að viðhalda vö...

9 Kesä 20251h 2min

Tryggvi Stefánsson, lífefnafræðingur og aðstoðarforstjóri Algalíf ræðir um Astaxanthin - einn öflugasta andoxara náttúrunnar og heilsufarsleg áhrif hans á líkamann.

Tryggvi Stefánsson, lífefnafræðingur og aðstoðarforstjóri Algalíf ræðir um Astaxanthin - einn öflugasta andoxara náttúrunnar og heilsufarsleg áhrif hans á líkamann.

Í þessum þætti ræðum við um eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar – astaxanthin – efni sem er unnið úr örþörungum og hefur vakið mikla athygli fyrir möguleg jákvæð áhrif á heilsu. Astaxanthin er ta...

2 Kesä 202559min

Líkamsstaða barna og unglina vegna mikillar síma- og skjánotkunar - stundum kallað tech neck, rottu- eða fuglastaðan. Gunnlaugur Jónasson, sjúkraþjálfari fer yfir stöðuna og gefur okkur góð ráð.

Líkamsstaða barna og unglina vegna mikillar síma- og skjánotkunar - stundum kallað tech neck, rottu- eða fuglastaðan. Gunnlaugur Jónasson, sjúkraþjálfari fer yfir stöðuna og gefur okkur góð ráð.

Börn og unglingar eyða nú meira af sínum tíma fyrir framan síma, spjaldtölvur og tölvur en nokkru sinni fyrr. Þó tæknin bjóði upp á ótal tækifæri til lærdóms og samskipta, þá hefur hún líka óumdeilanl...

26 Touko 202541min

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og stofnandi Gyna Medica kvenheilsumiðstöðvar um hormón, kvenheilsu, kynlíf, lífsgæði, beinheilsu og áhættu vs ávinning af hormónauppbót..

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og stofnandi Gyna Medica kvenheilsumiðstöðvar um hormón, kvenheilsu, kynlíf, lífsgæði, beinheilsu og áhættu vs ávinning af hormónauppbót..

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og stofnandi Gyna Medica kvenheilsumiðstöðvar um hormón, kvenheilsu, kynlíf, lífsgæði, beinheilsu og áhættu vs ávinning af hormónauppbót. Heilsuherinn styður útgáfu H...

22 Touko 20252h 14min

Sigurður Örn Ragnarsson um Greenfit, heilsumælingar, hámarkssúrefnisupptöku, árangur í íþróttum, langlífi, rauðljósameðferð, súrefnismeðferð og margt fleira.

Sigurður Örn Ragnarsson um Greenfit, heilsumælingar, hámarkssúrefnisupptöku, árangur í íþróttum, langlífi, rauðljósameðferð, súrefnismeðferð og margt fleira.

SIgurður Örn Ragnarsson er verkfræðingur, ólympíuþjálfari og margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut. Hann nýtir verkfræðilega þekkingu og aðferðir í að kortleggja heilsu viðskiptavina Greenfit og hjálp...

12 Touko 20252h

Aron Skúlason og Hildur Leonardsdóttir um fræolíur.

Aron Skúlason og Hildur Leonardsdóttir um fræolíur.

Aron Skúlason, hugbúnaðarverkfræðingur og Hildur Leonardsdóttir, heilbrigðisverkfræðingur hafa undanfarin ár kafað djúpt í rannsóknir á mataræði og næringu. Aron fékk áhuga á næringu sem meðferð eftir...

5 Touko 20252h 1min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
psykopodiaa-podcast
voi-hyvin-meditaatiot-2
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
adhd-podi
kesken
rss-liian-kuuma-peruna
rss-niinku-asia-on
rss-koira-haudattuna
rss-narsisti
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-luonnollinen-synnytys-podcast
rss-tietoinen-yhteys-podcast-2
rss-rahamania
aloita-meditaatio
rss-perho-rajoilla
rss-rahataito-podcast
rahapuhetta
rss-keskeneraiset-aidit
rss-psykalab