Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴

Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin hér á landi sú næstmesta meðal þeirra 34 OECD-ríkja sem skiluðu samanburðarhæfum gögnum og á síðasta ári notuðu tæplega 25.000 Íslendingar Z-svefnlyf á borð við Imovane og Stilnoct eða önnur slævandi lyf. Notkunin eykst verulega með aldri og yfir þriðjungur fólks 80 ára og eldra notaði slík lyf.

Í þessum þætti fáum við til okkar Drífu Sigfúsdóttur, sem tók virkan þátt í fræðsluverkefninu Sofðu vel á vegum Landssambands eldri borgara. Verkefnið var unnið að frumkvæði og undir forystu Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessors við Kaupmannahafnarháskóla, í samstarfi við LEB og aðila úr heilbrigðiskerfinu. Markmiðið var að fræða fólk um svefnlyf, mögulega áhættu þeirra og aðrar leiðir til að takast á við svefnvanda.

Drífa hefur sérstaka ástæðu fyrir því að brenna fyrir þessu málefni. Móðir hennar tók svefnlyf árum saman og Drífa telur að slæving og byltur hafi átt þátt í þeirri atburðarás sem endaði með því að móðir hennar þurfti að nota hjólastól. Drífa segir að fjölskyldan hafi aldrei verið upplýst um að lyfin gætu haft slík áhrif. Sú reynsla varð henni mikil hvatning til að fræða aðra.

🎙️ Við förum vítt og breitt yfir svefnlyfjanotkun Íslendinga:

💊 Hvað gera svefnlyf í raun fyrir svefninn?

😴 Hvað gerist þegar þau eru tekin mánuðum eða jafnvel árum saman?

🧠 Við ræðum minni og vitræna getu og rannsóknir sem hafa sýnt möguleg tengsl langtímanotkunar ákveðinna svefnlyfja við heilabilun.

🚶‍♀️ Við ræðum gríðarlega alvarlegar aukaverkanir sem geta haft sérstaklega alvarlegar afleiðingar fyrir eldra fólk.

⚠️ Hvað með þol og ávanamyndun? Hvað gerist þegar lyf sem upphaflega voru hugsuð sem skammtímalausn verða hluti af kvöldrútínunni árum saman?

💤 Er svefn undir áhrifum svefnlyfja það sama og náttúrulegur svefn?

💊 Og erum við í raun að draga úr svefnlyfjanotkun – eða er hluti hennar einfaldlega að færast yfir í önnur slævandi lyf?

Við ræðum líka hvernig hægt er að draga úr eða hætta notkun svefnlyfja á öruggan hátt, hvaða önnur úrræði eru til við langvinnum svefnvanda og hvers vegna mikilvægt er að gera slíkar breytingar í samráði við heilbrigðisstarfsfólk.

🌙 Árangurinn af Sofðu vel vekur athygli. Í könnun meðal 2.172 eldri borgara kom fram að meðal þeirra sem höfðu kynnt sér fræðsluna og notað svefnlyf áður en átakið hófst sögðust 46,4% hafa minnkað notkunina eða hætt alveg.

👉 Þáttur fyrir alla sem taka svefnlyf, eiga foreldra eða aðstandendur sem gera það – eða vilja einfaldlega vita meira um hvað gerist þegar svefnvandinn er meðhöndlaður með lyfjum til lengri tíma.

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is 🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is 🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is

Denne episoden er hentet fra en åpen RSS-feed og er ikke publisert av Podme. Den kan derfor inneholde annonser.

Episoder(107)

Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir. Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir. Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

13 Okt 1h 33min

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Okt 2h 22min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Sep 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Sep 1h 25min

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales Unive...

17 Sep 1h 8min

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu....

14 Sep 1h 16min

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir

🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofna...

10 Sep 1h 48min

Populært innen Fakta

fastlegen
dine-penger-pengeradet
fryktlos
rss-kunsten-a-leve
relasjonspodden-med-dora-thorhallsdottir-kjersti-idem
rss-strid
rss-bisarr-historie
treningspodden
foreldreradet
jakt-og-fiskepodden
sinnsyn
hverdagspsyken
rss-orjasater
takk-og-lov-med-anine-kierulf
rss-kull
mikkels-paskenotter
lederskap-nhhs-podkast-om-ledelse
gravid-uke-for-uke
hr-podden-2
dopet