Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Episoder(80)

Beta Reynisdóttir næringarfræðingur um persónulega reynslu af alvarlegum veikindum, leiðina til bata, nýja 7 daga blóðsykursnámskeiðið og tengsl sorgar og áfalla við næringu

Beta Reynisdóttir næringarfræðingur um persónulega reynslu af alvarlegum veikindum, leiðina til bata, nýja 7 daga blóðsykursnámskeiðið og tengsl sorgar og áfalla við næringu

Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur og næringarþerapisti, deilir með hlustendum persónulegri sögu sinni af alvarlegum veikindum og hvernig hún nýtti næringu og andlega rækt til að endurheimta hei...

27 Apr 2h 50min

Heiti potturinn með Sigurði Erni Hilmarssyni, mannréttindalögfræðingi og þingmanni um auknar valdheimildir heilbrigðisráðherra  í tengslum við farsóttir.

Heiti potturinn með Sigurði Erni Hilmarssyni, mannréttindalögfræðingi og þingmanni um auknar valdheimildir heilbrigðisráðherra í tengslum við farsóttir.

Heiti potturinn fjallar um nýsamþykkt sóttvarnarlög og þær víðtæku valdheimildir sem heilbrigðisráðherra eru færðar í tengslum við farsóttir. Gestur þáttarins er Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður og v...

22 Apr 2h 50min

Rick Doblin um notkun MDMA við áfallastreituröskun, rannsóknir á hugvíkkandi meðferðum og ávinning meðferðanna.

Rick Doblin um notkun MDMA við áfallastreituröskun, rannsóknir á hugvíkkandi meðferðum og ávinning meðferðanna.

Í þessu hlaðvarpi fjalla stjórnendurnir Lukka og Jóhanna um endurreisn hugvíkkandi efna í læknisfræðilegum tilgangi og kynna viðtal við frumkvöðulinn Rick Doblin. Hann er stofnandi MAPS og hefur baris...

20 Apr 2h 50min

Brynhildur Ólafsdóttir um Útihreyfinguna, ævintýrin, nauðsyn náttúrunnar, nærandi félagsskap, árstíðasport og sundhlaup.

Brynhildur Ólafsdóttir um Útihreyfinguna, ævintýrin, nauðsyn náttúrunnar, nærandi félagsskap, árstíðasport og sundhlaup.

Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Brynhildi Ólafsdóttur, stofnanda Útihreyfingarinnar, þar sem rætt er um mikilvægi þess að rækta líkama og sál í íslenskri náttúru. Brynhildur lýsir því hvernig...

13 Apr 1h 55min

Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um félagstöfra sem liggja til grundvallar samfélögum, vellíðan, velsæld og heilsu í víðustu merkingu - erum við að tapa þeim?

Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um félagstöfra sem liggja til grundvallar samfélögum, vellíðan, velsæld og heilsu í víðustu merkingu - erum við að tapa þeim?

🎙️ Í þessum þætti ræðum við við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, um það sem skiptir kannski meira máli en margt annað í lífinu: félagsleg tengslin okkar — og hvernig þau móta heilsu okkar,...

6 Apr 1h 14min

Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastj. Skógrækarfélags Reykjavíkur um mikilvægi aðgangs að náttúrunni og tengsl við heilsu, mögulega lokun stórs hluta Heiðmerkur, vatnsvernd og geislun vatns

Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastj. Skógrækarfélags Reykjavíkur um mikilvægi aðgangs að náttúrunni og tengsl við heilsu, mögulega lokun stórs hluta Heiðmerkur, vatnsvernd og geislun vatns

Í þessum þætti ræðum við við Auði Kjartansdóttur, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, landfræðing, snjóflóðasérfræðings, afreks- og útivistarkonu, um einstakt gildi náttúrunnar í lífi okkar...

30 Mar 1h 13min

Heilsan í eigin höndum: Samtal við Erlu Guðmundsdóttur um lífið, heilbrigði, samfélagið, ungbarnasund, heilsumarkþjálfun, íþróttakennslu og margt margt fleira gott

Heilsan í eigin höndum: Samtal við Erlu Guðmundsdóttur um lífið, heilbrigði, samfélagið, ungbarnasund, heilsumarkþjálfun, íþróttakennslu og margt margt fleira gott

Hér er rætt við Erlu Guðmundsdóttur, einnig þekkt sem Heilsuerla, sem er íþróttafræðingur, fjölhæfur heilsufrumkvöðull og stjórnandi hlaðvarpsins "með lífið í lúkunum"  Heilsa er eins og þriggja fóta...

24 Mar 1h 24min

Janus Guðlaugsson um styrktarþjálfun, mikilvægi vöðvavefs, bætingar á efri árum og mikilvægi heilsueflingar og stuðnings.

Janus Guðlaugsson um styrktarþjálfun, mikilvægi vöðvavefs, bætingar á efri árum og mikilvægi heilsueflingar og stuðnings.

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíó...

16 Mar 1h 31min

Populært innen Fakta

fastlegen
dine-penger-pengeradet
relasjonspodden-med-dora-thorhallsdottir-kjersti-idem
rss-strid-de-norske-borgerkrigene
mikkels-paskenotter
foreldreradet
rss-bisarr-historie
treningspodden
jakt-og-fiskepodden
sinnsyn
rss-kunsten-a-leve
hverdagspsyken
ukast
rss-sunn-okonomi
rss-bak-luftfarten
fryktlos
tomprat-med-gunnar-tjomlid
lederskap-nhhs-podkast-om-ledelse
gravid-uke-for-uke
hagespiren-podcast