Kristján Þór Gunnarsson, rótarlæknir um lýðheilsu og heilbrigði.

Kristján Þór Gunnarsson, rótarlæknir um lýðheilsu og heilbrigði.

Í þessum fyrsta þætti af Heilsuhlaðvarpinu tökum við á móti lækninum Kristjáni Þór Gunnarsyni. Við förum yfir sviðið þegar kemur að faraldri krónískra langvinnra veikinda en ástandið hefur aldrei verið eins slæmt. Þetta eru sjúkdómar eins og hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki, offita, nýrnabilun, elliglöp, geðsjúkdómar, taugasjúkdómar og krabbamein. Undirliggjandi þáttur í öllum þessum sjúkdómum eru bólgur og oft það sem kallað er efnaskiptavilla.

Meirihluti þjóðarinnar er á lyfseðilsskyldum lyfjum, 70 prósent landsmanna er í yfirþyngd og 30 prósent barna. Börn eru að mælast með háan blóðþrýsting og sum þeirra eru með byrjunareinkenni líffæraskemmda eins og byrjun á æðakölkun og þykknun í hjartavöðva. Ævilengd okkar er að minnka og árunum sem við erum veik eru að fjölga. Lyfjanotkun eykst jafnt og þétt en sjúkdómar halda áfram að aukast. Við erum því bara að vinna með að halda einkennum í skefjum en ekki að ráðast að rótum vandans. Og það eru engar áætlanir til að breyta ástandinu.

Kristján hefur verið í fararbroddi lækna sem hefur látið sig faraldur langvinnra krónískra sjúkdóma varða. Hann lét ekki staðar numið við læknisfræðina heldur bætti við sig þekkingu á frumulíffræði og starfsemi hvatberanna þar sem hann telur rót flestra þessara sjúkdóma liggja. Í fræðandi samtali förum við yfir margt sem snertir heilsu okkar, næringu og lífsstíl. Kristján Þór útskýrir hvernig samfélagið þarf að bregðast við faraldri krónískra langvinnra sjúkdóma, sem hann kallar samfélagssjúkdóma. Hann fjallar um mikilvægi forvarna og að ráðast að rótum vandans til að fækka þeim sem veikjast. Kristján Þór Gunnarsson veitir okkur ómetanlega innsýn í hvernig við getum byggt upp heilbrigðara samfélag!

Við ræðum:

  • Samfélagssjúkdóma og heilbrigðiskerfið: Hvernig sjötíu prósent Íslendinga eru á lyfjum og hvernig forvarnir gætu létt á heilbrigðiskerfinu.
  • Áhrif þróunarinnar á mataræði okkar: Hvernig breytingar á matvælaiðnaðinum, sérstaklega á áttunda og níunda áratugnum hafa haft áhrif á heilsuna.
  • Hættur sykurs, fræolía og gjörunninna matvæla: Sykur og unnin matvæli, sem valda slæmri blóðfitu og bólgum, eru aðalvandamálið sem við þurfum að takast á við.
  • Hvatbera og efnaskipti frumna: Hvernig hvatberarnir umbreyta orku úr fæðunni okkar í orku fyrir líkamann og hvaða áhrif matarræðið hefur á þessi „orkuver“ líkamans.
  • Gæði fitu og áhrif mismunandi olía: Af hverju við eigum að forðast fræolíur við steikingu og velja heilsusamlegri olíur eins og nautatólg, kókosoliu og avókadóolíu.
  • Mikilvægi heilbrigðra lífsvenja: Hvernig við getum komið á persónulegum gildum í mataræði og lífsstíl, hvort sem er með næringu, hreyfingu eða svefni.
  • Næringarráðleggingar fyrir skólamat og börn: Skilaboðin sem maturinn gefur lífeðlisfræðinni skipta máli, og við eigum að byggja upp umhverfi þar sem börnin okkar fá holla næringu og skapi jákvæðar venjur.

--------

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu

Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu

Saltverk - sjálfbært, hreint, óunnið íslenskt salt - þurrkað með jarðhita og inniheldur frá náttúrunnar hendi öll stein- og snefilefni

Det här avsnittet är hämtat från ett öppet RSS-flöde och publiceras inte av Podme. Det kan innehålla reklam.

Avsnitt(108)

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Okt 2h 22min

Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir. Höfum við einblínt um of á hitaeiningar en gleymt því sem raunverulega gerist inni í líkamanum?

13 Okt 1h 33min

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga | Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Okt 2h 22min

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn | Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Okt 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Sep 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Sep 1h 25min

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson

🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales Unive...

17 Sep 1h 8min

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft

🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu....

14 Sep 1h 16min

Populärt inom Utbildning

husmodern-med-amanda-schulman
sektledare
rss-bara-en-till-om-beroende-medberoende
det-skaver
historiepodden-se
nu-blir-det-historia
harrisons-dramatiska-historia
rosceremoni
rss-viktmedicinpodden
roda-vita-rosen
allt-du-velat-veta
rss-dr-bjorklund
kan-jag-sa-kan-du-podden
johannes-hansen-podcast
i-vantan-pa-katastrofen
sa-in-i-sjalen
rss-traningsklubben
not-fanny-anymore
rss-foraldramotet-bring-lagercrantz
rss-ai-med-jonas-benjamin