🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða aðkomu Vökudeildar eftir fæðingu. Um 30% barnanna þurftu slíka aðstoð eða eftirlit, samanborið við um 13% barna í samanburðarhópi.

Í þessum þætti af Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms ræðum við við Þórð Þórarin Þórðarson, nýburalækni á Landspítalanum, sem hafði umsjón með rannsókninni. Við förum yfir niðurstöðurnar, möguleg áhrif lyfjanna á fóstur og nýbura og mikilvægi þess að verðandi mæður fái greinargóðar upplýsingar um lyfjameðferð á meðgöngu.

Í þættinum ræðum við meðal annars:

Nýju íslensku rannsóknina – hvað kom í ljós þegar skoðuð voru áhrif SSRI- og SNRI-lyfja á nýbura?

Öndunarerfiðleika eftir fæðingu – hvers vegna þurfa fleiri börn mæðra sem taka þessi lyf öndunarstuðning eða aðstoð Vökudeildar?

Seinkaða aðlögun nýbura – slappleika, óróleika, aukna vöðvaspennu og erfiðleika við að nærast.

Niðurstöðurnar – um 30% barna í lyfjahópnum þurftu aðstoð eða aðkomu Vökudeildar, samanborið við um 13% í samanburðarhópnum.

Serótónín og fósturþroska – hvaða hlutverki gegnir serótónín í þroska heilans og hvað vitum við um möguleg langtímaáhrif lyfjanna?

Grun um sýkingar – hvers vegna eru þessi börn oftar rannsökuð vegna mögulegra sýkinga?

Sektarkennd mæðra – Þórður rifjar upp reynslu sína af mæðrum sem höfðu ekki verið upplýstar um hugsanleg áhrif lyfjanna og ásökuðu sjálfar sig þegar börnin þurftu aðstoð.

Upplýst samþykki – fá konur nægar upplýsingar um ávinning og áhættu lyfjameðferðar á meðgöngu?

Lyfjaskammta og áhættu – skiptir máli hvaða lyf eru notuð og í hversu stórum skömmtum?

Önnur meðferðarúrræði – er nægilegt aðgengi að sálfræðimeðferð og öðrum úrræðum fyrir konur sem glíma við kvíða og þunglyndi?

Mikla notkun þunglyndislyfja á Íslandi – hvers vegna er lyfjanotkun hér á landi svo mikil og þurfum við að endurskoða áherslur heilbrigðiskerfisins?

Heilsu móður og barns – hvernig finnum við jafnvægið milli þess að meðhöndla geðræn veikindi móðurinnar og draga úr hugsanlegri áhættu fyrir barnið?

Þórður leggur áherslu á að konur hætti ekki lyfjatöku án samráðs við lækni. Markmiðið sé að tryggja betri upplýsingagjöf, einstaklingsmiðaða meðferð og raunverulegt val um meðferðarúrræði.

Mikilvægur þáttur fyrir verðandi foreldra, heilbrigðisstarfsfólk og alla sem vilja fræðast um áhrif lyfja á meðgöngu.

Det här avsnittet är hämtat från ett öppet RSS-flöde och publiceras inte av Podme. Det kan innehålla reklam.

Avsnitt(110)

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar. Snemma í námi sínu kynntist...

2 Nov 1h 58min

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Okt 2h 22min

Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir

13 Okt 1h 33min

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Okt 2h 22min

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Okt 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Sep 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Sep 1h 25min

Populärt inom Utbildning

husmodern-med-amanda-schulman
historiepodden-se
rss-bara-en-till-om-beroende-medberoende
det-skaver
rosceremoni
nu-blir-det-historia
harrisons-dramatiska-historia
rss-viktmedicinpodden
rss-dr-bjorklund
sektledare
roda-vita-rosen
not-fanny-anymore
sa-in-i-sjalen
johannes-hansen-podcast
allt-du-velat-veta
i-vantan-pa-katastrofen
rss-basta-livet
rss-traningsklubben
rss-max-tant-med-max-villman
kan-jag-sa-kan-du-podden