Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Den här podcasten är hämtad från ett öppet RSS-flöde och publiceras inte av Podme. Den kan innehålla reklam.

Avsnitt(97)

Tryggvi Helgason sérfræðingur í barnalækningum og læknir í Heilsuskóla Barnaspítalans um offitu og fylgikvilla hennar og offitu og heilsu barna á Íslandi

Tryggvi Helgason sérfræðingur í barnalækningum og læknir í Heilsuskóla Barnaspítalans um offitu og fylgikvilla hennar og offitu og heilsu barna á Íslandi

Við fengum Tryggva Helgason barnalækni til að ræða við okkur um heilsufar barna með tilliti til ofþyngdar, offitu og fylgikvilla hennar. Hver er tíðni vandans og þróun undanfarin ár? Hverjar eru helst...

3 Mars 20251h 48min

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um.

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um.

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði fjallar um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um. Una leggur sérstaka áherslu ...

24 Feb 20252h 22min

Anna María Björnsdóttir um lífræna ræktun, skólamat, eiturefni í umhverfinu og heimildarmyndina Gróu.

Anna María Björnsdóttir um lífræna ræktun, skólamat, eiturefni í umhverfinu og heimildarmyndina Gróu.

Anna María Björnsdóttir, heimildarmyndaframleiðandi, tónlistarkona og síðast en ekki síst ástríðull talskona lífrænnar ræktunar er gestur okkar í þættinum.  Hún segir okkur frá því hvað lífræn ræktun ...

17 Feb 20251h 10min

Sara María forynja um hugvíkkandi meðferðir og framfarir í geðheilbrigðismálum

Sara María forynja um hugvíkkandi meðferðir og framfarir í geðheilbrigðismálum

Sara María forynja er frumkvöðull og brautryðjandi. Hún er lærður Transpersonal Psycotherapist og talskona fyrir hugvíkkandi meðferðir á Íslandi. Sara segir okkur frá ráðstefnu um hugvíkkandi meðferði...

12 Feb 20251h 22min

Sólveig Kristín Björgólfsdóttir um skólamatinn, aukaefnin í matnum, innihaldslýsingar og gjörunnin matvæli

Sólveig Kristín Björgólfsdóttir um skólamatinn, aukaefnin í matnum, innihaldslýsingar og gjörunnin matvæli

Hvað eru börnin okkar að fá að borða í skólanum? Í þættinum ræðum við við Sólveigu Kristínu Björgólfsdóttur um skólamat og mikilvægi þess að börn fái holla og góða fæðu í skólum landsins. Eftir að haf...

3 Feb 20251h 15min

Tommy Ragnar Wood læknir, lífeðlisfræðingur og sérfræðingur í heilaheilsu og taugalækningum um áhrif lífsstíls á heilaheilsu.

Tommy Ragnar Wood læknir, lífeðlisfræðingur og sérfræðingur í heilaheilsu og taugalækningum um áhrif lífsstíls á heilaheilsu.

💡  Hvernig lífsstíll hefur áhrif á heilann með Dr. Tommy Wood - getum við fyrirbyggt heilabilun? Dr. Thomas Ragnar Wood, sérfræðingur í taugavísindum ræðir við okkur hvernig daglegar venjur geta móta...

27 Jan 20252h 27min

Andri Iceland um öndun og áhrif hennar á lífsgæði okkar ásamt kulda - og samspil öndunar og kuldaþjálfunar.

Andri Iceland um öndun og áhrif hennar á lífsgæði okkar ásamt kulda - og samspil öndunar og kuldaþjálfunar.

Vilhjálmur Andra Einarsson, betur þekktur sem Andri Iceland,  umbreytti lífi sínu með öndunartækni og kuldaþjálfun. Hann deilir því hvernig rétt öndun og kæling getur haft gríðarleg áhrif á líkamlega ...

20 Jan 20251h 56min

Jakob Frímann Þorsteinsson um útimenntun, heilbrigði, samspil skólastarfs og frístundastarfs, vináttu og kaos.

Jakob Frímann Þorsteinsson um útimenntun, heilbrigði, samspil skólastarfs og frístundastarfs, vináttu og kaos.

13 Jan 20252h 14min

Populärt inom Utbildning

historiepodden-se
det-skaver
rss-bara-en-till-om-beroende-medberoende
nu-blir-det-historia
not-fanny-anymore
harrisons-dramatiska-historia
rss-viktmedicinpodden
roda-vita-rosen
johannes-hansen-podcast
allt-du-velat-veta
i-vantan-pa-katastrofen
rikatillsammans-om-privatekonomi-rikedom-i-livet
rss-max-tant-med-max-villman
rss-ar-det-rimligt
sektledare
rss-basta-livet
sa-in-i-sjalen
rss-traningsklubben
sex-pa-riktigt-med-marika-smith
rss-foraldramotet-bring-lagercrantz