Kristjana Steingrímsdóttir - Jana heilsukokkur um jafnvægið á jólunum, frábærar hugmyndir að jólagúmmelaði með heilsuívafi og ljúffenga hollustubita

Kristjana Steingrímsdóttir - Jana heilsukokkur um jafnvægið á jólunum, frábærar hugmyndir að jólagúmmelaði með heilsuívafi og ljúffenga hollustubita

🎄 Gestur þáttarins: Kristjana Steingrímsdóttir – Jana heilsukokkur

Í þessum þætti spjöllum við við Kristjönu Steingrímsdóttur – Jönu, heilsukokk, heilsuráðgjafa og skapandi matgæðing sem hefur farið einstaka vegferð í eldamennsku og hollustu.

Jana var um árabil kokkur á Happ veitingastaðnum í Lúxembúrg, sem enn í dag er talinn einn sá besti og þekktasti á sínu sviði.

Árið 2022 flutti Jana heim til Íslands, þar sem hún hefur síðan helgað sig því að kenna fólki að elda holla, einfalda og skapandi rétti, fara út fyrir boxið og njóta matar með meiri meðvitund – án þess að fórna bragði eða gleði.

🥗 Í þættinum ræðum við meðal annars:
  • Vegferð Jönu

  • Jólagúmmelaði með heilsuívafi – hvernig má njóta jólanna án samviskubits

  • Heilsusamlegt jólakonfekt og nammi – einfaldar, sniðugar og girnilegar uppskriftir

  • Flott meðlæti á jólaborðið

  • Ráð til að undirbúa vikuna í matargerð – skipulag, einfaldleiki og tímasparnaður

  • Fjölskyldan og eldamennskan – hvernig börn og fjölskylda taka þátt í matargerðinni

  • Hvernig Jana hjálpar fólki að vera skapandi í eldhúsinu og finna sína eigin leið

Jana er þekkt fyrir að gera hlutina aðgengilega, fallega og raunhæfa. Hún sýnir að hollur matur þarf ekki að vera flókinn, leiðinlegur eða takmarkandi – heldur getur hann verið skemmtilegur, fjölbreyttur og hátíðlegur.

Á vefsíðunni hennar jana.is má finna fjölda uppskrifta, fróðleik og innblástur fyrir daglegt líf og hátíðir.

Þáttur fyrir alla sem elska mat, heilsu, jólin – og að prófa eitthvað nýtt.

Hér fyrir neðan eru nokkrar uppskriftir sem Jana sagði okkur frá.

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Frosnir nammi molar (ca 18 molar)

Hráefni:

2 * 180 gr dósir grísk jógúrt sem þú elskar **

3 msk saxaðar pistasíur

3 msk þurrkuð trönuber

50 gr brætt dökkt gæða súkkulaði

Aðferð:

Byrjið á að hræra grísku jógúrtina við pistasíurnar og trönuber.

Setjið ca 1 matskeið af blöndunni í litlar hrúgur á bökunnarpappírs klæddan disk sem passar í ykkar frysti.

Bræðið súkkulaðið og dreifið yfir molana - frystið yfir nótt og njótið

**ef þú notar hreina gríska jógúrt er gott að blanda smá vanillu og sætu og hræra vel saman

Hollustu nammimolar með trefjum, og frábærri næringu

Bleikir molar

Hráefni:

3 bollar kókosmjöl

1 bolli möndlumjöl

1/3 bolli fljótandi kókosolía

1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp

1 tsk vanilla

1 msk gott rauðrófuduft

Smá salt

Aðferð:

Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og frysta

Geymist í frysti í 2-3 mánuði

Grænu molar

Hráefni:

3 bollar kókosmjöl

1 bolli möndlumjöl

1/3 bolli fljótandi kókosolía

1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp

1 tsk vanilla

1/2-1 tsk gott gæða matcha duft

Smá salt

Aðferð:

Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og frysta

Geymist í frysti í 2-3 mánuði

Súkkulaðikúlur

Hráefni:

1,5 bolli valhnetur (ma lika nota möndlur / kasjúhnetur)

14 mjúkar steinlausar döðlur

2 msk kakóduft

1 msk kókosolía (brædd)

Börkur og safi úr 1 lífrænni appelsínu( ma sleppa )

½ tsk vanilludropar

Örlítið salt

(Valfrjálst:1 dropi piparmyntuolía fyrir frískandi bragð)

Aðferð:

Allt sett í matvinnsluvélina og blandað vel saman. Mótaðu í litla bita eða kúluform, eða þrýstu í form og skerðu í mola, hægt að velta upp úr kókosmjöli eða kakó dufti. Kældu í ísskáp í 30 mínútur áður en þú nýtur þeirra. Mér finnst gott að geyma í boxi í frysti og næla mér í kúlu og kúlu.

Alhliða sítrus–hunangs dressing

Fullkomin á salöt, grænmeti, fisk, kjúkling og jafnvel ofan á ristað rótargrænmeti.

Hráefni:

6 msk extra virgin ólífuolía

2 msk sítrussafi (sítróna, lime eða appelsína – má blanda)

1 tsk eplaedik eða balsamik (ljóst)

1-2 msk náttúruleg sæta (t.d hunang eða hlynsíróp )

1 tsk Dijon sinnep (valfrjálst en er voða gott)

Salt og nýmalaður pipar eftir smekk

Aðferð:

Settu allt saman í krukku, skrúfaðu lokið á og hristu vel saman. Smakkaðu til með salti og pipar.

Auðvelt að breyta :

Fyrir meiri ferskleiki: rifinn lífrænn sítrónubörkur

Fyrir meiri dýpt: smá tahini eða hvítlauksrif

Skemmtilegt twist að setja ferskar kryddjurtir út í eins og saxað basil, dill eða kóríander

Asískt twist: skiptu ediki út fyrir hrísgrjónaedik og auka dropa af ristaðari sesamolíu og smá chili flögur

Tämä jakso on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi jakso saattaa sisältää mainontaa.

Jaksot(90)

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Í þessum þætti ræðum við við Aron Skúlason, verkfræðing og áhugamann um heilsu, sem heldur úti heilsusíðunni Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Aron hefur sökkt sér djúpt í r...

6 Heinä 1h 32min

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?

Í þessu hlaðvarpsviðtali ræðir Kjartan Örn Sigurðsson við þær Lukku og Jóhönnu um mikilvægi vinnustaðamenningar og tengsl hennar við heilsu og vellíðan. Kjartan leggur áherslu á að mörg vandamál, sem ...

29 Kesä 1h 37min

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“  Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem nútímalífið hefur fæ...

22 Kesä 1h 19min

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

🧪 Eiturefnakokteillinn í daglega lífinu – ósýnilegu efnin í líkamanum okkar Í þessum þætti eigum við samtal við Kristínu Ólafsdóttur, lífefnafræðing og dósent í eiturefnafræði við læknadeild Háskóla ...

15 Kesä 1h 23min

Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

Í þættinum er rætt við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara, íþróttakennara og íþróttafræðing. Hildur er fædd og uppalin á Hvolsvelli þar sem hún lærði snemma til sveitaverka í heyskap og sauðb...

8 Kesä 1h 5min

Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

🐝 Hvað vitum við í raun um hunangsbýflugur? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við í heimsókn Ingvar Sigurðsson býflugnabónda og köfum inn í einstakan heim hunangsbýflugun...

2 Kesä 57min

Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

Í þessum þætti ræðum við við Magna Grétarsson sjúkraþjálfara um eitt af áhugaverðustu kerfum líkamans: bandvefinn — eða fasíuna. Bandvefurinn er oft kallaður “netið” sem tengir líkamann saman frá topp...

25 Touko 1h 5min

Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

🎙️ Mældist eldri en hann var — og sneri þróuninni við | Valgeir Magnússon, Valli Sport Í þessum þætti fáum við til okkar Valgeir Magnússon, frumkvöðul, auglýsinga- og markaðsmann, sem margir þekkja s...

19 Touko 1h 9min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
psykopodiaa-podcast
rss-narsisti
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
rss-liian-kuuma-peruna
voi-hyvin-meditaatiot-2
adhd-podi
kesken
rahapuhetta
filocast-filosofian-perusteet
rss-vuosikymmenen-ilmastoteko
jari-sarasvuo-podcast
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-vapaudu-voimaasi
aamukahvilla
salainen-paivakirja
psykologia
rss-psykalab
rss-ai-mita-siskopodcast
rss-luonnollinen-synnytys-podcast