Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Tämä podcast on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi podcastin jaksot saattavat sisältää mainontaa.

Jaksot(90)

Þórunn Birna Guðmundsdóttir doktor í Austurlenskum lækningum um fræðin, nálastungur, næringu, árstíðir og heildrænan lækningar

Þórunn Birna Guðmundsdóttir doktor í Austurlenskum lækningum um fræðin, nálastungur, næringu, árstíðir og heildrænan lækningar

Í þessum þætti fáum við til okkar Dr. Þórunni Birnu Guðmundsdóttur, sérfræðing í nálastungum og austrænni læknisfræði, og ræðum hvernig austræn nálgun er ólík vestrænni – og hvar þær geta unnið saman....

26 Tammi 1h 6min

Sölvi Tryggvason um stóru myndina, heilbrigði, lífsgæði, tog samfélagsins í átt að óhollustu, áföll, úrvinnslu og persónulegan vöxt

Sölvi Tryggvason um stóru myndina, heilbrigði, lífsgæði, tog samfélagsins í átt að óhollustu, áföll, úrvinnslu og persónulegan vöxt

Í þessum þætti er rætt við Sölva Tryggvason um stóru myndina þegar kemur að heilsu og ábyrgð. Hvernig samfélagið ýtir stöðugt að okkur óhollustu og hvernig við erum orðin samdauna óhollum lifnaðarhátt...

20 Tammi 1h 52min

Heiti potturinn með Aroni Skúlasyni verkfræðingi og Magnúsi Stefánssyni flugstjóra

Heiti potturinn með Aroni Skúlasyni verkfræðingi og Magnúsi Stefánssyni flugstjóra

Í Heita pottinum setjumst við í pottinn með Aroni Skúlasyni, verkfræðingi sem heldur úti Instagram-reikningnum Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Með okkur er líka Magnús Ste...

16 Tammi 57min

Elín Jónsdóttir, verkefnastjóri heilsu og vellíðunar hjá Nettó um sína heilsuvegferð, stofnun 101 Granda, Costa Rica og hið stóra verkefni að gera heilsudeild Nettó að bestu heilsudeild landsins.

Elín Jónsdóttir, verkefnastjóri heilsu og vellíðunar hjá Nettó um sína heilsuvegferð, stofnun 101 Granda, Costa Rica og hið stóra verkefni að gera heilsudeild Nettó að bestu heilsudeild landsins.

Í þessum þætti setjumst við niður með Elínu Jónsdóttur, verkefnastjóra heilsu og vellíðunar hjá Nettó, og förum bæði í persónulega sögu hennar og stóra myndina: hvernig er að leiða heilsu- og vellíðun...

12 Tammi 2h 13min

Heiti potturinn með Sigurði Erni Ragnarssyni og Sigurjóni Erni Sturlusyni - Nýjar næringarráðleggingar í Bandaríkjunum ræddar í pottinum.

Heiti potturinn með Sigurði Erni Ragnarssyni og Sigurjóni Erni Sturlusyni - Nýjar næringarráðleggingar í Bandaríkjunum ræddar í pottinum.

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíó...

8 Tammi 2h 11min

Gígja Sunneva Bjarnadóttir um markmið, hvernig við breytum hegðun og byggjum upp nýjar venjur, virkni heilans, hlutverk dópamíns, mikilvægi vanaskráningar og sjálfþekkingar.

Gígja Sunneva Bjarnadóttir um markmið, hvernig við breytum hegðun og byggjum upp nýjar venjur, virkni heilans, hlutverk dópamíns, mikilvægi vanaskráningar og sjálfþekkingar.

Í þessum fróðlega og hagnýta þætti fáum við til okkar Gígju Sunnevu Bjarnadóttur, með meistaragráðu í heilsusálfræði, og kafað er djúpt í eitt það sem flest okkar glímum við: 👉 Hvernig breytum við he...

5 Tammi 2h 8min

Guðrún Bergmann um heilsu, hreint mataræði, stjörnuspeki, himintungl og geimverur 💫

Guðrún Bergmann um heilsu, hreint mataræði, stjörnuspeki, himintungl og geimverur 💫

Í sérstökum áramótaþætti fáum við til okkar Guðrúnu Bergmann – konu sem hefur í rúmlega fjóra áratugi miðlað þekkingu um heilsu, lífsstíl, sjálfsvinnu og andlega þróun. Guðrún er 75 ára, enn á fullu o...

30 Joulu 20252h 15min

Tryggvi Hjaltason um föstur, áhrif þeirra á líkamann, heilsu, trú, mátt bænarinnar og kærleik.

Tryggvi Hjaltason um föstur, áhrif þeirra á líkamann, heilsu, trú, mátt bænarinnar og kærleik.

Gestur þáttarins er Tryggvi Hjaltason greinandi, gagnasérfræðingur og áhrifamikil rödd í umræðu um menntakerfið okkar, föstur, lífstíl, heilsu og andlega iðkun. Tryggvi hefur vakið mikla athygli fyri...

23 Joulu 20251h 11min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
psykopodiaa-podcast
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
voi-hyvin-meditaatiot-2
rss-liian-kuuma-peruna
rss-narsisti
kesken
adhd-podi
rahapuhetta
rss-luonnollinen-synnytys-podcast
rss-vuosikymmenen-ilmastoteko
aamukahvilla
aloita-meditaatio
jari-sarasvuo-podcast
filocast-filosofian-perusteet
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-psykalab
rss-laadukasta-ensihoitoa
rss-duodecim-lehti
rss-tietoinen-yhteys-podcast-2