Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Tämä podcast on lisätty Podme-palveluun avoimen RSS-syötteen kautta eikä se ole Podmen omaa tuotantoa. Siksi podcastin jaksot saattavat sisältää mainontaa.

Jaksot(90)

Heilsan í eigin höndum: Samtal við Erlu Guðmundsdóttur um lífið, heilbrigði, samfélagið, ungbarnasund, heilsumarkþjálfun, íþróttakennslu og margt margt fleira gott

Heilsan í eigin höndum: Samtal við Erlu Guðmundsdóttur um lífið, heilbrigði, samfélagið, ungbarnasund, heilsumarkþjálfun, íþróttakennslu og margt margt fleira gott

Hér er rætt við Erlu Guðmundsdóttur, einnig þekkt sem Heilsuerla, sem er íþróttafræðingur, fjölhæfur heilsufrumkvöðull og stjórnandi hlaðvarpsins "með lífið í lúkunum"  Heilsa er eins og þriggja fóta...

24 Maalis 1h 24min

Janus Guðlaugsson um styrktarþjálfun, mikilvægi vöðvavefs, bætingar á efri árum og mikilvægi heilsueflingar og stuðnings.

Janus Guðlaugsson um styrktarþjálfun, mikilvægi vöðvavefs, bætingar á efri árum og mikilvægi heilsueflingar og stuðnings.

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíó...

16 Maalis 1h 31min

Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir um ljós og myrkur, birtuvillu, mikilvægi sólarinnar og hvernig við eigum frekar að nota sólgleraugun á kvöldin ☀️☀️😎

9 Maalis 1h 57min

Sigga Kling um um lífið, örlögin og ábyrgðina á eigin vegferð, stjörnurnar, vitundina og það að þora að vera maður sjálfur ☀️✨💫

Sigga Kling um um lífið, örlögin og ábyrgðina á eigin vegferð, stjörnurnar, vitundina og það að þora að vera maður sjálfur ☀️✨💫

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ ⭐ Protis...

2 Maalis 2h 31min

Andri Snær Magnason um húsin sem rísa, draumana sem víkja í menningu málamiðlana og gjöfina sem við gætum fært hvert öðru 💞

Andri Snær Magnason um húsin sem rísa, draumana sem víkja í menningu málamiðlana og gjöfina sem við gætum fært hvert öðru 💞

Í þessum þætti fáum við til okkar Andra Snæ Magnason – rithöfund, hugsuð og einn skarpasta samfélagsrýnanda landsins. Nýjasta bókin hans Jötunnsteinn er stutt en hárbeitt saga þar sem hann kastar stei...

23 Helmi 2h 9min

Dr.Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur um hjartsláttarbreytileika (HRV) og áhrif hans á andlega seiglu, hugræna frammistöðu, viðbragðsflýti, vinnuþreytu og  jákvæðar tilfinningar.

Dr.Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur um hjartsláttarbreytileika (HRV) og áhrif hans á andlega seiglu, hugræna frammistöðu, viðbragðsflýti, vinnuþreytu og jákvæðar tilfinningar.

Í þessum þætti fáum við til okkar Dr. Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í lífeðlisfræðilegri sálfræði, og förum djúpt í HRV (Heart Rate Variability) – eitt áhugaverðasta mælitæki sem...

16 Helmi 1h 27min

Hugi Ingibjartsson um að greinast með 3ja stigs óskurðtækt krabbamein – og hugrekkið að fara eigin leið að hluta

Hugi Ingibjartsson um að greinast með 3ja stigs óskurðtækt krabbamein – og hugrekkið að fara eigin leið að hluta

Í þessum þætti ræðum við við Huga Ingibjartsson, sem greindist með 3ja stigs tungurótarkrabbamein sem reyndist ekki skurðtækt. Hugi lýsir því hvernig það er að standa frammi fyrir erfiðri greiningu og...

10 Helmi 49min

Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim

Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur sjúkraþjálfarar um langvinna verki og hvernig við náum stjórn á þeim

Í þessum þætti fáum við til okkar systurnar og sjúkraþjálfarana Heru Rut og Thelmu Rut Hólmarsdætur, sem starfa á Reykjalundi. Þær hafa sérhæft sig í aðstoð við fólk sem glímir við langvinna verki og ...

2 Helmi 1h 46min

Suosittua kategoriassa Koulutus

rss-murhan-anatomia
psykopodiaa-podcast
rss-narsisti
rss-arkea-ja-aurinkoa-podcast-espanjasta
rss-liian-kuuma-peruna
voi-hyvin-meditaatiot-2
adhd-podi
kesken
rahapuhetta
filocast-filosofian-perusteet
rss-vuosikymmenen-ilmastoteko
jari-sarasvuo-podcast
ihminen-tavattavissa-tommy-hellsten-instituutti
rss-vapaudu-voimaasi
aamukahvilla
salainen-paivakirja
psykologia
rss-tripsteri
rss-psykalab
rss-perho-rajoilla