Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

Í þættinum er rætt við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara, íþróttakennara og íþróttafræðing. Hildur er fædd og uppalin á Hvolsvelli þar sem hún lærði snemma til sveitaverka í heyskap og sauðburði, og tók þátt í afar fjölbreyttu íþróttastarfi, allt frá fótbolta og frjálsum yfir í sund og blak. Eftir að hún fluttist á höfuðborgarsvæðið starfaði hún mikið sem þjálfari í heilsurækt meðfram háskólanámi sínu. Hildur sker sig úr í sínu fagi fyrir einstaklega heildræna nálgun. Í stað þess að meðhöndla aðeins staðbundna verki, tekur hún sér góðan tíma í að greina og skoða hreyfingar til að leita að raunverulegri rót vandans. Hún leggur ríka áherslu á hreyfigæði og líkir líkamanum oft við vél í bíl; að hennar mati er það að taka eingöngu verkjalyf eins og að skrúfa peruna úr viðvörunarljósinu í mælaborðinu frekar en að opna vélina og gera við bilunina sjálfa. Vegna þessarar ástríðu sinnar fyrir forvörnum tók Hildur þá stóru ákvörðun að segja sig af samningi við Sjúkratryggingar Íslands til að fá rými til að sinna fólki á heildrænan hátt, þar sem hið hefðbundna kerfi niðurgreiðir almennt ekki fyrirbyggjandi þjónustu. Í dag rekur hún Sjúkrasport í Sporthúsinu þar sem 12 sjúkraþjálfarar starfa. Hún vinnur meðal annars náið með afreksíþróttafólki og langhlaupurum að því að fínstilla hreyfikerfið, bæta árangur og viðhalda heilbrigði til langs tíma. Í viðtalinu deilir Hildur dýrmætri reynslu sinni, hugleiðingum um hraða nútímasamfélags og öfgar í hreyfingu, ásamt draumi sínum um aukna samvinnu ólíkra fagaðila til að breyta kerfinu okkar úr sjúkdómakerfi í raunverulegt heilbrigðiskerfi.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🌿 Eirberg - Eirberg hefur í áratugi verið leiðandi á Íslandi þegar kemur að vönduðum vörum sem styðja við heilsu, vellíðan, hreyfingu og betri lífsgæði. Þar má finna fjölbreytt úrval af heilsuvörum, hjálpartækjum, stuðningsvörum, svefnlausnum, nuddtækjum, hitameðferðum og mörgu fleiru sem getur hjálpað fólki að lifa virkari og betri lífi. www.eirberg.is

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna.

Heimasíða: www.greenfit.is (greenfit.is)

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Heimasíða: www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🏡 Húsaskjól — fasteignasala sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og traust í stórum ákvörðunum lífsins. Heimasíða: www.husaskjol.is (Húsaskjól)

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

Denne episoden er hentet fra en åpen RSS-feed og er ikke publisert av Podme. Den kan derfor inneholde annonser.

Episoder(88)

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“  Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem nútímalífið hefur fæ...

22 Jun 1h 19min

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

🧪 Eiturefnakokteillinn í daglega lífinu – ósýnilegu efnin í líkamanum okkar Í þessum þætti eigum við samtal við Kristínu Ólafsdóttur, lífefnafræðing og dósent í eiturefnafræði við læknadeild Háskóla ...

15 Jun 1h 23min

Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

🐝 Hvað vitum við í raun um hunangsbýflugur? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við í heimsókn Ingvar Sigurðsson býflugnabónda og köfum inn í einstakan heim hunangsbýflugun...

2 Jun 57min

Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

Í þessum þætti ræðum við við Magna Grétarsson sjúkraþjálfara um eitt af áhugaverðustu kerfum líkamans: bandvefinn — eða fasíuna. Bandvefurinn er oft kallaður “netið” sem tengir líkamann saman frá topp...

25 Mai 1h 5min

Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

🎙️ Mældist eldri en hann var — og sneri þróuninni við | Valgeir Magnússon, Valli Sport Í þessum þætti fáum við til okkar Valgeir Magnússon, frumkvöðul, auglýsinga- og markaðsmann, sem margir þekkja s...

19 Mai 1h 9min

Fida Abu Libdeh um kísil "hið gleymda næringarefni" og söguna af því hvernig unglingaveik stúlka frá Palestínu yfirsteig hindranir og varð stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica 🌋

Fida Abu Libdeh um kísil "hið gleymda næringarefni" og söguna af því hvernig unglingaveik stúlka frá Palestínu yfirsteig hindranir og varð stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica 🌋

Fida Abu Libdeh lýsir því hvernig hún flutti sextán ára gömul frá Palestínu til Íslands og yfirsteig verulegar hindranir í skólakerfinu, þar á meðal tungumálaörðugleika og lesblindu. Með menntun sinni...

11 Mai 57min

Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣  Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

Í þessum þætti fáum við til okkar Kristinn Johnson, framkvæmdastjóra Eirbergs, í einstaklega fróðlegt, lifandi og skemmtilegt samtal um heilsu, forvarnir, tækni og tæki sem geta stutt okkur í að hugsa...

5 Mai 1h 25min

Populært innen Fakta

fastlegen
dine-penger-pengeradet
relasjonspodden-med-dora-thorhallsdottir-kjersti-idem
foreldreradet
treningspodden
jakt-og-fiskepodden
rss-kunsten-a-leve
rss-kull
mikkels-paskenotter
rss-sarbar-med-lotte-erik
sinnsyn
rss-strid-de-norske-borgerkrigene
tomprat-med-gunnar-tjomlid
gravid-uke-for-uke
hverdagspsyken
takk-og-lov-med-anine-kierulf
smart-forklart
rss-bisarr-historie
teknologi-og-mennesker
hagespiren-podcast