Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.

Pálmi V. Jónsson, öldrunarlækni og prófessor, hefur í áratugi verið leiðandi rödd í málefnum eldra fólks á Íslandi. Í þessum fróðlega þætti af Heilsuhlaðvarpinu brýtur Pálmi upp staðalmyndir um ellina og ræðir hvernig við getum ekki bara lifað lengur, heldur betur. Þátturinn er stútfullur af staðreyndum og sögum sem vekja fólk til umhugsunar. Pálmi deilir til að mynda góðri sögu af afa sínum sem varð 103 ára gamall, en sá hafði þann vana að borða feita kjötsúpu flesta daga. Þetta leiðir talið að mikilvægi þess að við endurskoðum mataræðið og borðum mögulega helmingi meira prótein og fitu en almennt hefur verið mælt með. Pálmi útskýrir einnig hvernig við eigum það til að rugla hreyfingarleysi eða svokölluðum „kyrrsetubreytingum“ saman við raunveruleg ellimerki, og hvernig við getum snúa þeirri þróun við og tekið stjórn á eigin heilsu.

Spjallið tekur svo á fleiri óvæntum heilsuógnum þegar Pálmi bendir á að einmanaleiki geti verið álíka heilsuspillandi og að reykja pakka af sígarettum daglega.

Til að mæta þessum áskorunum ræðir hann stórhuga áform um nýja framtíðarparadís og hágæða heilsusetur í Gunnarshólma fyrir fólk yfir sextugu. Þar á að umbylta allri þjónustu og byggja upp samfélag sem vinnur virkt gegn einangrun. Hlustaðu á skemmtilegt spjall við Pálma til að komast að því hvernig við getum snúið blaðinu við og mætt efri árunum af fullum krafti.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Denne episoden er hentet fra en åpen RSS-feed og er ikke publisert av Podme. Den kan derfor inneholde annonser.

Episoder(110)

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar. Snemma í námi sínu kynntist...

2 Nov 1h 58min

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða aðkomu...

26 Okt 1h 9min

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Okt 2h 22min

Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir

13 Okt 1h 33min

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Okt 2h 22min

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Okt 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Sep 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Sep 1h 25min

Populært innen Fakta

fastlegen
dine-penger-pengeradet
fryktlos
relasjonspodden-med-dora-thorhallsdottir-kjersti-idem
rss-strid
treningspodden
foreldreradet
rss-ekteskapet
jakt-og-fiskepodden
rss-bisarr-historie
rss-kunsten-a-leve
rss-orjasater
rss-kull
sinnsyn
mikkels-paskenotter
gravid-uke-for-uke
branncast
rss-impressions-2
rss-sarbar-med-lotte-erik
hverdagspsyken