Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Denne podkasten er hentet fra en åpen RSS-feed og er ikke publisert av Podme. Den kan derfor inneholde annonser.

Episoder(90)

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Aron Skúlason verkfræðingur - Er sólin hættuleg?

Í þessum þætti ræðum við við Aron Skúlason, verkfræðing og áhugamann um heilsu, sem heldur úti heilsusíðunni Frá toppi til táar ásamt konunni sinni Hildi Leonardsdóttur. Aron hefur sökkt sér djúpt í r...

6 Jul 1h 32min

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?

Kjartan Örn Sigurðsson. Hvernig tengist vinnustaðamenning bæði auknum hagnaði fyrirtækja og bættri heilsu og lífsgæðum starfsfólks?

Í þessu hlaðvarpsviðtali ræðir Kjartan Örn Sigurðsson við þær Lukku og Jóhönnu um mikilvægi vinnustaðamenningar og tengsl hennar við heilsu og vellíðan. Kjartan leggur áherslu á að mörg vandamál, sem ...

29 Jun 1h 37min

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“  Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem nútímalífið hefur fæ...

22 Jun 1h 19min

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

Kristín Ólafsdóttir lífefnafræðingur og dósent í eiturefnafræði við HÍ um eiturefnakokteilinn í daglega lífinu - ósýnilegu efnin í umhverfinu og í okkur.

🧪 Eiturefnakokteillinn í daglega lífinu – ósýnilegu efnin í líkamanum okkar Í þessum þætti eigum við samtal við Kristínu Ólafsdóttur, lífefnafræðing og dósent í eiturefnafræði við læknadeild Háskóla ...

15 Jun 1h 23min

Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

Hildur Kristin Sveinsdóttir sjúkraþjálfari og eigandi Sjúkrasport um heildræna nálgun, forvarnir, íþróttir og afrek, seiglu og mörkin á milli heilbrigðrar hreyfingar og öfga

Í þættinum er rætt við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara, íþróttakennara og íþróttafræðing. Hildur er fædd og uppalin á Hvolsvelli þar sem hún lærði snemma til sveitaverka í heyskap og sauðb...

8 Jun 1h 5min

Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

Ingvar Sigurðsson býflugnabóndi um undraheim hunangsbýflugna og afurðir þeirra

🐝 Hvað vitum við í raun um hunangsbýflugur? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við í heimsókn Ingvar Sigurðsson býflugnabónda og köfum inn í einstakan heim hunangsbýflugun...

2 Jun 57min

Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

Magni Grétarsson, sjúkraþjálfari um fasíuna og áhrif hennar á líkamsstöðu og heilsuna. Óvæntar tengingar við tunguna, hvernig við öndum, útlit og fleira.

Í þessum þætti ræðum við við Magna Grétarsson sjúkraþjálfara um eitt af áhugaverðustu kerfum líkamans: bandvefinn — eða fasíuna. Bandvefurinn er oft kallaður “netið” sem tengir líkamann saman frá topp...

25 Mai 1h 5min

Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

Valgeir Magnússon og heilsan í Excel. Frá því að mælast eldri — í að yngja líkamann um 20 ár.

🎙️ Mældist eldri en hann var — og sneri þróuninni við | Valgeir Magnússon, Valli Sport Í þessum þætti fáum við til okkar Valgeir Magnússon, frumkvöðul, auglýsinga- og markaðsmann, sem margir þekkja s...

19 Mai 1h 9min

Populært innen Fakta

fastlegen
dine-penger-pengeradet
relasjonspodden-med-dora-thorhallsdottir-kjersti-idem
rss-kunsten-a-leve
foreldreradet
treningspodden
mikkels-paskenotter
sinnsyn
rss-strid-de-norske-borgerkrigene
jakt-og-fiskepodden
gravid-uke-for-uke
rss-sarbar-med-lotte-erik
fryktlos
uroskolen
hverdagspsyken
rss-mind-body-podden
rss-impressions-2
rss-var-forste-kaffe
takk-og-lov-med-anine-kierulf
level-up-med-anniken-binz