Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣  Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

Í þessum þætti fáum við til okkar Kristinn Johnson, framkvæmdastjóra Eirbergs, í einstaklega fróðlegt, lifandi og skemmtilegt samtal um heilsu, forvarnir, tækni og tæki sem geta stutt okkur í að hugsa betur um líkamann. 🌿✨

Kristinn er sannkallaður „nörd“ í besta skilningi þess orðs 🤓 — fullur af ástríðu fyrir því sem hann gerir og brennur fyrir því að bjóða fólki lausnir sem geta hjálpað til við að viðhalda heilsu, bæta lífsgæði og styðja við forvarnir áður en vandamál verða alvarleg.

Við förum yfir víðan völl og ræðum meðal annars loftmengun, loftgæði og hvað góð lofttæki þurfa að hafa til að gera raunverulegan mun. 🌬️🏡 Hvaða síur skipta máli? Hvað þarf fólk að vita áður en það velur lofttæki? Og hvers vegna getur loftið inni á heimilum og vinnustöðum haft meiri áhrif á heilsuna en margir halda?

Við ræðum líka rauð ljós og innrauð ljós 🔴💡 — hvað slík tæki þurfa að uppfylla, hvaða gæði skipta máli og hvers vegna þau hafa vakið mikla athygli í heilsuheiminum.

Þá förum við inn á berfótaskó 👣 og hvers vegna hefðbundnir skór eru oft hannaðir á hátt sem fer illa saman við náttúrulega lögun og virkni fótarins. Við ræðum hvaða áhrif það getur haft á líkamsstöðu, hreyfimynstur, jafnvægi og styrk í fótum að skipta yfir í skó sem leyfa fætinum að hreyfast eðlilegar.

Við snertum einnig á jarðtengingu, eða earthing 🌍⚡ — hugmyndinni um líkamann sem rafrænt og ljósnæmt kerfi, og hvernig þeir sem aðhyllast decentralized medicine hefur talað um samband líkamans við ljós, rafsegulumhverfi og jörðina. Við ræðum mögulega kosti jarðtengingar og sérstaka berfótaskó með silfurþráðum til að við getum tengt við jörðina í hverju skrefi utanhúss.

Að lokum ræðum við kosti og galla berfótaskóa fyrir afreksíþróttafólk, hlaupara og almennt fólk sem vill styrkja fætur, bæta hreyfigetu og tengjast líkamanum betur. 🏃‍♂️👟👣

Þetta er samtal um forvarnir, forvitni, tækni, náttúru og heilsu — og hvernig litlar breytingar í umhverfi okkar geta haft stór áhrif á það hvernig okkur líður. 🌱💛

  • 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is

  • 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is

  • 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is

  • 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is

  • 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is

  • 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is

  • 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Det här avsnittet är hämtat från ett öppet RSS-flöde och publiceras inte av Podme. Det kan innehålla reklam.

Avsnitt(110)

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar. Snemma í námi sínu kynntist...

2 Nov 1h 58min

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða aðkomu...

26 Okt 1h 9min

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Okt 2h 22min

Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir

13 Okt 1h 33min

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Okt 2h 22min

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Okt 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Sep 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Sep 1h 25min

Populärt inom Utbildning

husmodern-med-amanda-schulman
historiepodden-se
rss-bara-en-till-om-beroende-medberoende
det-skaver
rosceremoni
nu-blir-det-historia
harrisons-dramatiska-historia
roda-vita-rosen
sektledare
rss-dr-bjorklund
rss-viktmedicinpodden
sa-in-i-sjalen
not-fanny-anymore
allt-du-velat-veta
johannes-hansen-podcast
rss-traningsklubben
kan-jag-sa-kan-du-podden
rss-basta-livet
rss-max-tant-med-max-villman
rss-foraldramotet-bring-lagercrantz