Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

Anna María Björnsdóttir kvikmyndagerðarkona - „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

🎙️ Eiturefnin í okkur – „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“

Í þessum þætti höldum við áfram umræðunni um eiturefnin í kringum okkur – efnakokteilinn sem nútímalífið hefur fært inn á heimilin okkar, í matinn, vatnið, jarðveginn, líkamann og jafnvel í börnin áður en þau fæðast. 🌍🧬

Gestur þáttarins er Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Lífrænu Íslandi og kvikmyndagerðarkona, en hún er ein af höfundum heimildarmyndarinnar GRÓU um lífræna ræktun á Íslandi. Anna María skrifaði nýlega grein á Vísi undir yfirskriftinni: „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ – sterk orð, en eru þau ýkt eða er þetta raunveruleikinn sem við þurfum að horfast í augu við? ☠️🥦

Við komum inn á reynslu og rannsóknir danska prófessorsins Philippe Grandjean, eins fremsta sérfræðings heims á sviði umhverfislæknisfræði. Hann hefur í áratugi varað við áhrifum efna eins og blýs, kvikasilfurs, chlorpyrifos og PFAS-flúorefna – og aftur og aftur hefur sagan sýnt að hann hafði ástæðu til að hafa áhyggjur. 🧪⚠️

Við ræðum af hverju varúðarreglan skiptir svo miklu máli þegar kemur að mat, landbúnaði og heilsu komandi kynslóða. 👶🌱 Eiturefni ættu að vera meðhöndluð sem „sek — uns sakleysi er sannað“, ekki öfugt.

Í þættinum förum við líka yfir hvað við getum raunverulega gert til að minnka snertingu okkar við þessi efni í daglegu lífi. 🌿

Við ræðum leiðir sem Philippe Grandjean hefur bent á til að draga úr eiturefnaálagi — og styðja við kerfi sem setja heilsu barna og komandi kynslóða í forgang. 👶💧

Grandjean hefur ítrekað bent á að vandinn sé ekki bara einstaklingsbundinn — þetta sé líka kerfisvandamál. Þess vegna þurfi sterkari reglur, meiri ábyrgð framleiðenda og vísindamenn sem þora að tala skýrt þegar rannsóknir benda til áhættu. 🧪⚠️

Við ræðum einnig stöðu lífrænnar ræktunar á Íslandi og af hverju hún skiptir máli. Er lífræn ræktun aðeins „valkostur fyrir fáa“ — eða gæti hún verið mikilvægur hluti af framtíðarsýn fyrir hreinni mat, heilbrigðari jarðveg, minna eiturefnaálag og meiri ábyrgð gagnvart börnum, náttúru og samfélagi? 🌱🇮🇸

Þetta er mikilvægt samtal um heilsu, börn, matvæli, lífræna ræktun, iðnaðinn, eftirlitskerfin og þær litlu ákvarðanir sem við tökum á hverjum degi - um aukna vitund, ábyrgð og möguleikann á að velja betur. 🌿✨

Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms 🎧 Hlustaðu– og deildu þættinum með þeim sem vilja vita meira um ósýnilegu efnin í daglega lífinu.

🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins

Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn:

🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb.

🌿 Eirberg - Eirberg hefur í áratugi verið leiðandi á Íslandi þegar kemur að vönduðum vörum sem styðja við heilsu, vellíðan, hreyfingu og betri lífsgæði. Þar má finna fjölbreytt úrval af heilsuvörum, hjálpartækjum, stuðningsvörum, svefnlausnum, nuddtækjum, hitameðferðum og mörgu fleiru sem getur hjálpað fólki að lifa virkari og betri lífi. www.eirberg.is

🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is

🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn)

🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is)

💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland)

⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS)

🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.

Det här avsnittet är hämtat från ett öppet RSS-flöde och publiceras inte av Podme. Det kan innehålla reklam.

Avsnitt(110)

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar. Snemma í námi sínu kynntist...

2 Nov 1h 58min

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða aðkomu...

26 Okt 1h 9min

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

19 Okt 2h 22min

Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir

Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is 🛒 Nettó – frábær til...

13 Okt 1h 33min

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein

🌿 Getur kannabis raunverulega verið lyf? 🧠 Hvað er endókannabínóíðkerfið – og hvers vegna lærðu margir læknar svo lítið um það í læknanámi? 🔬 Hvað segja rannsóknirnar og hvað hefur læknir sem hefur...

5 Okt 2h 22min

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

Heiti potturinn - Svefnlyfjaþjóðin | Drífa Sigfúsdóttir | Aukaverkanir, ávanamyndun og leiðin út úr svefnlyfjanotkun

💊 SVEFNLYFJAÞJÓÐIN – HVAÐ GERIST ÞEGAR SKAMMTÍMALAUSN VERÐUR AÐ ÁRALANGRI VENJU? 😴 Íslendingar hafa lengi verið meðal þeirra þjóða sem nota mest af svefn- og slævandi lyfjum. Árið 2024 var notkunin ...

1 Okt 1h 11min

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

Kollagen – timbrið í byggingu líkamans | Hvað heldur húðinni heilbrigðri? | Dr. Lára G. Sigurðardóttir

✨ Hvað getum við sjálf gert til að halda húðinni heilbrigðri, sterkri og fallegri með aldrinum? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Láru G. Sigurðardóttur, lækni með sérmenntun í ...

28 Sep 1h 24min

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Hvað gerist þegar við losum um fasíuna? | Verkir, trauma, taugakerfið og andlitslyfting | Ingunn Ragna Sævarsdóttir | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis

Fasían, taugakerfið og trauma | Frá krónískum verkjum til verkjaleysis | Ingunn Ragna Sævarsdóttir Í þessum þætti Heilsuhlaðvarpsins ræðum við við Ingunni Rögnu Sævarsdóttur, þjálfara og leiðbeinanda ...

21 Sep 1h 25min

Populärt inom Utbildning

husmodern-med-amanda-schulman
historiepodden-se
rss-bara-en-till-om-beroende-medberoende
det-skaver
rosceremoni
nu-blir-det-historia
harrisons-dramatiska-historia
rss-viktmedicinpodden
rss-dr-bjorklund
sektledare
roda-vita-rosen
not-fanny-anymore
sa-in-i-sjalen
johannes-hansen-podcast
allt-du-velat-veta
i-vantan-pa-katastrofen
rss-basta-livet
rss-traningsklubben
rss-max-tant-med-max-villman
kan-jag-sa-kan-du-podden